Hér eru nokkrar myndir af snilldar pöddum sem ég sá á ströndinni um seinustu helgi. Fyrri myndin er af 3 cm langri vespu halda fanginni stærðarinnar húsflugu (er hún að verpa??). Næsta mynd er af vespu í sama tré ..djöfull var ég að skíta á mig meðan ég tók þessar myndir.

Á ströndinni var heilmikið líf. Þetta fiðrildi og þessi drekafluga virtust jafn forvitnar um mig og ég um þær því þær pósuðu alveg heillengi fyrir framan mig meðan ég reyndi að ná fókusnum akkúrat. Helvítis klúður að taka ekki góðu linsuna mína með..

Að lokum er hér mynd af risa-moskítóflugu sem Saúl veiddi um daginn heima. Þær eru ekki svona stórar að jafnaði, hann geymdi þessa til að sýna okkur.

Annars hló ég og hló þegar ég tók eftir því í morgun að moskítóvörnin mín heitir Átan. Reyndar Autan, en ég las þetta sem Átan og það er svooo viðeigandi, með mynd af kvikindi fyrir neðan nafnið á túpunni.

6 Responses to “Nokkrar pöddumyndir”

  1. Haukur Heiðar Says:

    hvur andskotinn!!!!

  2. Telma Says:

    ewwww…síðasta myndin fríkar mig út..þetta er svona eins og í einhverri bíómynd… hahah

    En ég bið bara að heilsa þér, njóttu lífsins!

    Ha det bra!

  3. Krummi Says:

    Hahaha vaaa…thessi moskito er faranleg…thetta er abuyggilega eins og ad fa blodprufu ad vera stunginn af thessu..

  4. Einar Says:

    Þetta eru flottar myndir Lora. Hvaða linsu notaðiru?

  5. EddaK Says:

    vá ég þurfti svo ekki að sjá myndina af þessari moskító… prísa mig sæla að það eru bara hrossaflugur sem ná þessum stærðarflokki hér á klakanum!

  6. Marcia Says:

    One of the things I like about Iceland is the virtual lack of bugs. I was very glad to say goodbye to them when I moved to Iceland from the States! However, the pictures are definitely interesting to look at. :)

Leave a Reply