Ég sit á matsölutorginu í verslunarmiðstöð 2 götum frá heimili mínu að notfæra mér þráðlausa netið hérna. Það á eftir að koma þráðlausu neti í gagnið heima, það kemur bráðum og þá fer ég oftar á netið. Þangað til verða bloggfærslur og email óreglulegur viðburður.
Verslunarmiðstöðin heitir Galerias og er víst “moll” ríka fólksins, sem þýðir bara að búðirnar eru dýrar og tómar og fara gjarnan á hausinn. Hér er samt allt morandi í fólki og börnum á göngunum því það er víst sport að fara í göngutúr um mollið og borða jafnvel Burger King eða annan skyndibita. Það er meira að segja Subway hérna.
Annars hef ég það alveg svakalega gott hérna í Nica. Í raun lifi ég mun hærra en á Íslandi með stórt og bjart herbergi með risa skáp og einkabaðherbergi. Ég á hreinlega ekki nóg drasl til að fylla allt skápaplássið
Gerður og Saúl eru svakalega góð við mig.. fullt fæði þýðir líka að það er borgað fyrir mig þegar fjölskyldan borðar á veitingastöðum. Það er gert um helgar því Nuvia, húshjálpin mætir bara á virkum dögum.
Fyrir utan hversu hátt ég lifi þá er ég að missa mig yfir hvað það er allt grænt og lifandi hérna. Á þessum þrem dögum er ég búin að sjá fleiri litrík fiðrildi en ég get talið, nokkra kólibrífugla, fullt af eðlum og þónokkrar bjöllur. Er ekki enn búin að fá neitt maurabit en 2 moskítóbit, sem er ekki neitt miðað við hvað það er rakt og hlýtt og ég ekki að nota neina moskítóvörn úti við. Allir gluggar hússinseru með flugnanetum ..og öll herbergin með loftkælingu
Á morgun byrja ég að passa Gest, vakna klukkan 7 til að klæða hann og fæða og svo mun ég keyra með hann í skólann sinn ..hangsa til 13 þegar ég sæki hann aftur og leik við hann til 17. Ekki erfiður vinnudagur það ..nú þegar búin að átta mig þokkalega á krakkanum og við eigum svakalega margt sameiginlegt, t.d að finnast skordýr og dýr almennt algjör snilld, gaman að sparka í bolta og teikna og kubba.
En ég er að verða batteríslaus þannig ég kveð að sinni, vona að fólk sé að njóta verslunarmannahelgarinnar á Íslandi..
August 4th, 2008 at 12:45 pm
Hi Lora!
Good to see that you are enjoying yourself! It’s fascinating and fun to read of your adventures over there, even though it might sound mundane and routine to your own ears, so I hope you continue to give us a peek into your daily life over there. Bjarni is here now and it is good to see him again.
Your dad is off on his walk and out of phone reach. We had mid 20° weather most of last week but it is now cooler and not as sunny. Bjartur has a cold, poor little guy. Hugs, Mom
August 5th, 2008 at 9:38 am
Hæ!
Gott að fá fregnir og svona líka jákvæðar… Nú sé ég lífstíl þinn fyrir mér svolítið eins og ég bjó í Florida… er það alrangt?
Vona að pössunin gangi vel!… Ef ekki annað geturu lagt þig á daginn
Þetta errosalega raunverulegt, allt að gerast, og virðist fallegt.
Farðu vel með þig.
Kveðjurnar
August 5th, 2008 at 6:04 pm
Haukur með borderline lesblindu..
“gaman að sparka í bolta og teikna og gubba.”
August 5th, 2008 at 9:17 pm
Me likes the new look
August 6th, 2008 at 8:50 pm
Magnað! Meira!
August 8th, 2008 at 7:43 pm
Gott að heyra í ykkur.
August 8th, 2008 at 10:20 pm
Ég sakna þín, Lora