Archive for May, 2008

Best að skella smá bloggi inn. Klukkan 20 mínútur í frelsi og Reykjavík er mun bjartari yfirlitum en í gær ..þó ég sé komin með nett ógeð á að stara á Þjóðleikhúsið gegnum skítugan gluggann í vinnunni.

Þannig er annar dagurinn minn liðinn hérna í afleysingum í Alþjóðahúsinu. Í næstu viku fer ég í raunverulegu sumarvinnuna mína uppí Kennaraháskóla hjá Dóru félagsfræðingi. Þar er ég búin að lofa mér til 15.júlí en 1.ágúst verð ég komin til Nicaragua í haustvinnuna.

Er líka komin með aukaverkefni í sumar ..eitt þýðingarverkefni og nýtt vefsíðuverkefni sem gefur mér innblástur. Ég er nefnilega meira tungumálanörd en ég gerði mér grein fyrir. Vinnandi með hinum stórskemmtilega pólska Mirek reyni ég að skilja eitthvað smá í pólskunni hans og búin að endurnýja áhugann á að fara til Póllands um tíma og ná þessu allavega talmálslega.

En áður en ég held útí næstum því sólskinið, ferska loftið og sumarblíðuna ætla að auglýsa eftir fólki til að heimsækja mig á laugardaginn kemur í Hafnarfirði. Ég á að sjá um Alþjóðahúss básinn á Þjóðahátíð sem verður haldin í íþróttahúsinu allan daginn. Ég endurtek þjóð-a-hátíð, réttum útlendinga þar sem mismunandi þjóðernum er smalað á bása. Heimsæk mig!

 

Skrýtið hvað mig langar oft að blogga beint eftir að hafa bloggað. En eftir meira en dagsbið þá missi ég alla löngun. Óinspíreruð. Brjóta múrinn með stuttu bloggi. Stundum þarf maður bara að brjóta þagnarmúra.

 

Grámyglan er að drepa mig og það vantar enn 13 mínútur fimm, 13 mínútur í frelsið. Þrátt fyrir 7 tíma svefn og hugleiðslu í morgun er ég álíka hress og lík. Búin að láta mig dagdreyma um heitan pott í 5 klst ..ætla að sjóða úr mér fýluna. Afhverju svona fúl? Ég veit það ekki..

 

Hæ og hó og halló eftir próf. Það er gott að vera til á degi sem þessum þegar flugurnar flögra og bílarnir brumma.. Mika syngur til mín að slappa af og taka því rólega ..ég fíla Mika.

Dagurinn er búinn að vera afslappaður ..en ég gat því miður ekki mætt á fótboltaæfingu sökum óstöðugleika í magfærum (mag alíf færum ef þið skiljið ekki tilbúninginn minn).  Fögnuðurinn í gærkvöldi var samt alveg þess virði að missa af einni æfingu, þó þáttaka hafi ekki verið með besta móti. Næturvaktir,  morgunvaktur, útlandaferðir og laugardagslög er meðal afsakananna sem ég er enn að fussa yfir eins og gamalmenni útí horni sem enginn hlustar á. Common?! Vitiði ekki að þetta er meðal seinustu tækifæranna til að djamma með mér næsta hálfa árið?! Ha? Að ég verð bara eeeekkert í vísó alla haustönn?? Pfff.. léló.

En nóg um kvart og kvein, vonandi verður Nicaragua nú þess virði að missa af því að horfa á félagsráðgjafa framtíðarinnar veltast um bæinn. Ég hlýt að finna einhverja til að fíflast með. Jafnvel elta bolta. Djöfull væri það gaman ..ef það er ekki of heitt að hreyfa sig í gufunni þarna..  Já, ég held að framtíðarhorfurnar séu bara hreint ágætar.

Skammtíma framtíðarhorfurnar eru að fara heim til mömmu og pabba núna að borða matinn og kökurnar þeirra. Er búin að vera að japla á ferskum kóríander með lime og minna-mál kexi því ég sver ..það er ekkert annað til! Kláraði hrökkbrauðið mitt í gær og á enga ávexti, mjólk, ekki neitt.. Svo á morgun held ég bara áfram að gera lifihæft heima hjá mér eftir prófatörnina, sjiiii…

 

Djíses hvað ég er ekki að nenna að læra undir þetta seinasta próf! Aðferðarfræði bara passar ekki alveg inn í fílinginn í lífi mínu þessa dagana. Núna er sumar ..tími kæruleysis, ekki aga! Æjæjæj, svona er þetta bara, maður lifir og lærir.

Þessa dagana er ég í stuði til að GERA hluti.  Leggja hönd á plóg og rækta nýjan skóg! Mottóið mitt er að drífa fólk og vera drifin í að koma að gera hluti ..ólíkt mínu afskaplega hangsilega eðli. Þar með býð ég fólk velkomið að taka þátt í þessari nýju og breyttu Loru, ég skal spila, fara út á land, elda, fara á tónleika eða fara á námskeið - just ask, og verið viðbúin að ég fari að stinga upp á allskonar vitleysu við ykkur. Nú ætla ég svo að fara að gera eitthvað annað en hanga í tölvunni :)

 

Best að setja eitthvað á veraldarvefinn, stutt og laggott. Eins og faggott. Fag-gott? Eru ekki allir bara hressir? Tvö prófhappycows.jpg búin, bara tvö eftir ..stutt í próflokaflipp, námsmönnum hleypt af hlöðunni, hoppandi og hjalandi um læki og tún, hvaða ævintýri hefur sumarið í vændum?

Hjá mér er það klárlega fyrsta viðbótin við fjölskyldukjarnann minn, bumbubúann sem sparkaði og sparkaði í höndina á Loru frænku í kvöld ..það er farið að vera ansi þröngt í kúlunni hjá systu. Svo er það heimkoma Kristínar allan júní og heimkoma Tinnu allan júlí ..þið eruð svo samstilltar án þess að vita af því! Svo Vonandi fæ ég að vinna eitthvað, vonandi verður gott veður, vonandi fer ég með kleinó austur eina helgi, vonandi eitthvað fleira. Æfandi fótbolta á laugardögum, mesta snilld í geimi. . það liggur við að maður gleymi bara Nicaragua haha! :O) en þið? ha? spennó jájájújú? verður sumarið ‘08 gott eða mergsogið faggott?

 

Jæja í tilefni veðursins og væntanlegrar Nicaragua ferðar minnar er hér mjög svo trópíkalskt þema. Ég hafði það í hálfan dag í seinasta mánuði en var ekki í stuði fyrir það. Þannig þetta verður maí-lúkkið. AFsakið samt hvað headerinn er stór (sérstaklega beint til þín Kristín) ;)

Í dag er búinn að vera yndislegur sólar-dagur og ég hef náð að njóta hans þrátt fyrir að vera lærandi undir félagsmálastefnu-prófið. Sit á Prikinu hlustandi á Beach boys syngja um Söööörf haha..

Lesturinn er mér svoo algjör innblástur. Ég hef alltaf elskað vorpróf. Finnst magnað hvað mínir framtíðardraumar hafa þróast og mótast á þessu eina ári í félagsráðgjöf. Þetta er svooo rétt nám fyrir mig. Ég er að lesa um hluti sem ég hef velt fyrir mér síðan ég var krakki! Lagalegan rétt, samböndum fólks, menningum mismunandi landa o.s.fr. Aaaafhverju er þetta ekki kennt í grunnskóla???

Anyways, í kvöld ætla ég að umgangast fólk, kynnast nýju fólki og ég ætla að drekka pilsnera, en samt ekki of marga ..mig langar svo að vakna snemma og fara í fótbolta :D GAAAAMAAAAN. Vona svo að allir gestir vefheimilisins míns sem lesa þessi orð eigi frábæra helgi og að veðrið verði æðislegt áfram :)