Archive for March, 2008

Eg hef 6 minutur eftir a bokasafnstolvunni ..buin ad athuga netbankana, gengid, mbl, baedi meilin og senda nokkur sms. For adan i Iceland.co.uk sem er matvoruverslanakedja sem selur frosinn mat a lagu verdi. Keypti stort lasagna a eitt pund ..svona eins og 1944 rett,  sukkuladikoku a 1,5 pund og maisstongla a 1 pund. Svo aetla eg nuna heim ad horfa a restina af annarri seriu greys anatomy og sotra paracetamol teid sem apotekid seldi mer. Fostudagskv0ld i London..  ekki nakvaemlega eins og eg planadi thad :D

 

Hvada malshatt fengud thid i paskaeggid ykkar?  

Thad er gedveikt feit dufa fyrir utan gluggann herna sem er ad reyna ad ballansera sig a alltof litilli trjagrein. Skondin. Eg sit a bokasafni Rose Bruford medan Tinna er i videoupptokum sem fidluleikari fyrir vin sinn sem er ad laera leikstjorn..

I dag aetla eg thvi ad kikja i allar charity budir sem eg kemst i, thvi thad er ekkert buid ad vera opid nema veitingastadir og matvoruverslanir. Paskavesen. Annars sa eg ad kronan er buin ad styrkjast thannig hun reis haest akkurat thegar eg keypti pundin. Djofull er thad fokking pirrandi ..tho thad hafi bara kostad mig 2000 kronur.

Svona a jakvaedari notunum tha er Sidcup, smabaerinn sem Tinna byr i, virkilega notalegur. Vid erum bunar ad kikja i Soho og Chinatown, a Portobello markadinn og eigum eftir ad ferdast meira ut um alla london. Sidcup, sem er eins og Mosfellsbaer, er fullkomid motvaegi vid stressinu sem fylgir london gedveikinni. Svo er hann lika miklu odyrari.

Nu er ferdin taeplega halfnud og nog eftir ad gera.  Farin ad versla goda folk. Njotid rakaleysisins a Islandi. Thad er Fokk Kalt herna.

 

 Jæja þá er klukkustund í flugrútuna og ég má til með að fleyta fram nokkrum orðum hér. Hér og þar og allsstaðar. Vonandi verður eins gott veður í Lon og Don, eins og verið hefur undanfarið í Reykjavíkinni. Maður hefur verið eins og útsprungin páskalilja í hjartanu.

Ég hlakka til að stíga úr vélinni klukkan 19:30 og faðma brosandi Tinnu að mér á Deathrow og fara með henni í vonandi ekki allt of dýrum leigara heim. Úff hann verður örugglega allt of dýr.. En, svona er lífið. Útlandaflakk kostar sitt!

Mig langar í nýja fallega kápu og bretar eru sérfræðingar í kápum. Þeir eiga endalaust af þeim. Svo langar mig í vatnsheld falleg stígvél. Man ekki fleira sem mig langar í þetta augnablikið enda er ég í adrenalín-ótta-ástandi þar sem ég er búin að gera allt of margt undanfarna daga. Skattframtal, 9 þúsund email, uppvask síðustu vikna, pakka á nóinu, fara í bankann og gráta.. mikið er maður duflegur.

Trallila, ég veit ekkert hvort ég komist mikið á netið fram í Apríl því Tinna er ekki með netið heima hjá sér og það eru víst ekki hotspot á víð og dreif um London eins og hér.

Gleðilega páska!

 

abc.jpg

 

Nú væri góður tími til að vera síðasti skóladagurinn. Ekki bara seinasti dagurinn fyrir páskafrí. Vorið hefur varpað sér eins og atómsprengja yfir líf Reykvíkinga, eins og ólétta hjá ungri stúlku. Það er svo kósý að vakna við birtu og fuglasöng.. Afhverju eru allir óléttir? Engin svör..

 

Þetta var mjög skemmtileg helgi og ég hlakka til morgundagsins í vinnunum tveimur. Ekki skemmir heldur að ég er á corolluna hennar mömmu.. Við Morrison erum búin að mynda farsælt samstarf sem dúett og jáh, við erum lukkuleg með það.
bil.gif
En það styttist geðveikt í páskana. Hafið þið tekið eftir því? Páskaegg út um allt, óunnin skólaverkefni að hrannast upp ..og það eru bara 5 dagar í London ferðina! Verst hvað það er mikil synd að fara þegar það vorar svona í Reykjavík! Því ekkErt er feggurren vorkvöldíReyjavíík..

 

Ég er farin að hlakka geðveikt til að velja og hanna næsta útlit á þessa síðu því mér finnst erfitt að lesa svona lítið letur. Wordpress, bloggforritið sem ég er að nota er helvíti frumstætt miðað við vinsældir. Ég t.d. get ekki stækkað letur eða gert nokkurn andskotann.

Kannski þarf ég bara einhverja viðbót.  Nenniggi.

Ps. djöfull vel ég aldrei framar viljandi þunglyndislegt viðfangsefni í ritgerð.

 

Í gærkvöldi steinsofnaði ég klukkan níu. Það er fyrir mér alveg stórmerkilegt. Veit einhver hvort djamm í London byrji fyrr á kvöldin en hér? Langar að halda áfram að sofna snemma og vakna snemma þó ég sé að fara í frí.
bil.gif
Ég mætti svo uppí Alþjóðahús kl 9 í morgun eftir nærri 12 tíma svefn og er að fíla nýja vinnufyrirkomulagið í botn. Gjörsamlega frábært. Fæ að demba öllum leiðinlegu frétta verkefnunum á starfsnemann ..ætli yfirmönnunum mínum líði ekki svona gagnvart mér?bil.gifkhi.jpg

bil.gif
Núna er ég svo komin uppí Kennaraháskóla og sit á bókasafninu. Það er alveg sérstök hönnun á safninu.. Svo sérstök að það er mynd af henni á forsíðu khi.is sem ég er búin að kópera og teikna mig sem spýtukall inná.

Sit í þessum rauða sófa sem er á myndinni og glugginn fyrir aftan mig birtir upp í öllu litaða plastinu á þrem hæðum upp fyrir mig. Fallegt.
bil.gif
Ég get samt ekki unnið í dag fyrir Dóru afþví að kallinn sem heimtaði að vera milliliður (bannaði mér að senda beint á hina tölvukallana) gleymdi að áframsenda póstinn frá mér á þá. Nice. Svo er Dóra í Skotlandi og getur ekki látið mig fá eitthvað annað verkefni ..en þá sit ég bara hér og læri.
bil.gif
Ég þarf hvort sem er nokkrar bækur sem eru bara hér og fást ekki á hlöðunni. Svo er þetta þægilegur sófi. Engin þrúgandi þögn heldur eins og er á bókhlöðunni eða of gult umhverfi. Það fer vel um mig hérna.. og ég er að fíla námið þessa dagana. Þetta er góð önn.

 

Hvílíkur viðbjóður að horfa í kringum mig hérna í herbergi. Deyjandi pálmatrésplanta. Skór í vökvunarskál pálmans. pipp-bréf á víð og dreif og tómatssósa fyrir framan lyklaborðið mitt. (Hvað er tómatssósa að gera á tölvuborðinu mínu?!)  ..fatastaflar, óuppsettur reykskynjari, óupptekinn póstur, bækur útum öll gólf. Kannski ætti ég að láta verða af því að setja upp þessa hillu sem pabbi gaf mér. Þetta er nasty.

bil.gifEn á jákvæðari nótum er ég að lesa áhugaverðustu bók sem ég hef lesið LENGI. Hún heitir Friends, For Life og er eftir Steve Duck.  Hahahahaha.. DUCK. Frábært. Frábær bók..

 

Úbbs, þetta er alveg handónýt síða í Internet explorer. Ekki gott..

Allir að fá sér firefox!! :)

UPDATE: Æji ég faldi bara myndirnar úr síðustu færslu, fínt, komið í lag.