Archive for February, 2008

http://www.scaryideas.com/index2.html

Góða helgi..

 

love-triangle.gif Já svona getur ástin verið mismunandi samsett samkvæmt honum Sternberg.

Hef ég minnst á það hversu áhugaverð félagsráðgjöf er? ;)

 

kringla.jpg

Afhverju ætti maður að skrifa um sitt óáhugaverða líf, opinbera sig fyrir öllum á netinu og afhverju myndi nokkur vilja lesa um það, eins óáhugavert og það er?

Flestir bloggarar hafa reynt að svara þessu ..þó með misgóðum árangri. Hér er mín tilraun..

Mitt svar við þessu felst í því afhverju maður les dagblöð, það eru þá helst þessi þrjú atriði :

Einstaka greinar vekja áhuga manns. Sum blogg vekja áhuga minn einvörðungu því ég þekki bloggarann. Aðrir eru húmoristar eða á annan hátt áhugaverðir pennar.

Dagblöð koma út daglega ..mér þætti það afskaplega pirrandi að kíkja við á skrifstofu dagblaða á 3ja mánaða fresti í von og óvon um að út væri komið nýtt eintak. Ég er hætt að linka á óreglubloggara.

Greinarnar eru stuttar og hnitmiðaðar. Við gerum ekki kröfu um að fréttaritarar séu afbragðs pennar ..svo lengi sem þeir eru ekki afleitir, koma sér að efninu og skrifa ekki of langar greinar eru menn sáttir.

Mér finnst í raun dagblaðagreinar mjög svipaðar og blogg þó bloggarar hafi ýmsa möguleika sem fréttaritarar hafa væntanlega ekki ..eins og skrifa persónulegar (sem mér finnst æði) og að skrifa langar greinar ef þeim svo listir. Sum blogg eru afleit og sjálf hef ég skrifað óhnitmiðaðar langlokur, skrifað Mjög óreglulega og skrifað um margt mjög óáhugavert ..en fyrir utan einfalda útrás þess að blogga finnst mér æðislegt að eiga vefheimili sem fólk heimsækir. Mér finnst líka æðislegt að lesa blogg vina og vandamanna ..það er alltaf jafn leiðinlegt þegar fólk gefst upp.

 

Jæja ég var komin með ógeð á “blómarósa” útlitinu.. “parket-slettu” lúkkið skartar fagurlega teiknaðri mynd eftir mig og yours truly í ögn lita-bjöguðu formi. Þarna brosi ég að henni Ylfu á World-Cup í Berlín ef ég man rétt..

Ætlunin er þó ekki að halda þessari hönnun, hún er bara tímabundin. Ég bara þoldi ekki hitt lúkkið stundinni lengur. Maður verður nú líka að nýta sér hversu auðvelt er að klæða blogg í nýjan búning ..svo er það líka engu síðri tjáningarmáti en orða-blogg.

Ég elska að vefsíðast ..var að því á launum í dag og svo ólaunað í kvöld. Að skapa vefsíðu getur verið eins og að mála málverk eða gera teiknimynd. Það jafnast hreinlega ekkert á við að búa eitthvað til sem manni finnst flott. Einhverndaginn ætla ég því að læra að búa til tónlist..

Málningar-penslarnir og blettirnir á parketinu vekja hjá mér ljúfar minningar frá jólunum 06 þegar ég málaði málverk í fyrsta skiptið. Það var virkilega skemmtilegt ..og svo lengi sem maður notar ekki olíumálningu er ekkert mál að þrífa bletti af parketi :D

..allir eru listamenn, því allir þurfa að tjá sig..eini vandinn er að þora að leyfa sér, þora að gera eitthvað öðruvísi, öðrum orðum að vera ekki með endalausa fullkomnunaráráttu..

En fokk, klukkan er rúmlega 4. Tími kl 10 í fyrramálið í Sorg, áföll og sálræn skyndihjálp.
AFHVERJU ER ÉG EKKI SOFANDI?? X-/

Þemasöngur vikunnar:
“Það er leikur að læra, leikur sá er mér kær, að vita meira og meira, meir í dag en í gær.”

 

Ef maður vaknar hundfúll er trickið að fara í sund og soðna í heitum potti í ca. 15 mín.

 

Tölvan suðar og hamstrarnir bíða eftir að ljósin slökkni. Það hurfu óvart 4 klukkustundir úr lífi mínu í kvöld í ginnungargap internet-vafurs. Internetsuga. Ég vafraði því ég nennti ekki að blogga. Sem ég ætlaði að gera því ég nennti ekki að læra.

Núna er ég kvíðin ..of kvíðin til að sofna, og klukkan er þrjú. Reyndar er ég líka of hrædd því það var að heyrast geðveikt hátt uss hljóð hérna inn í herbergi. Ef hamstrarnir gáfu frá sér hljóðið hef ég aldrei heyrt þá hljóða svona áður. Sem er ólíklegt. Þannig að hér ussaði óþekkt vera á mig. Heimska kvöld.

 

á bloggferli mínum hét Fyrsta færslan og var skrifuð þann 2002-02-17 ..semsagt ég er nýbúin að eiga 6 ára blogg-afmæli ! Semsagt nú er ég komin á skóla-aldur ..og mikið rétt, ég bloggaði fyrstu færsluna um skóla..

Þetta er það sem ég skrifaði:

Í dag lauk ég námskeiði í leikhúsförðun hjá Bandalagi Íslenskra Leikfélaga. Stórt skref í átt að væntanlegum (vonandi) frama mínum! Það sem við lærðum var nokkuð áhugavert, t.d. hvernig á að láta manneskju líta út fyrir að vera 100 ára á leiksviði.. hlakka geðveikt til að fara á framhaldsnámskeiðið í sumar! Svo er ég búin að eyða öllu kvöldinu í að setja upp þetta dót :) …sorglega er að ég ætti að vera búin að eyða öllum þessum tíma í að klára Sjálfstætt fólk. Snilldar bók, en ég bara hef meira gaman af því að gera nútímanlega hluti.. eða allavega félagslegri!

Þarna var ég 17 ára..

 

Ég vaknaði við vekjaraklukkuna 10:15 og horfði út á skærbláan og bjartan himinn. Klukkutími og korter í strætó.
Ég hafði tekið saman sunddótið áður en ég fór að sofa þannig ég þvoði mér róleg í framan meðan ég hitaði hafragraut úr poka. Svo setti ég kaffivélina í gang og  henti peru, epli, jógúrt, vítamín og prótíndufti í blandarann og hakkaði í mauk.glugginn_minn.jpg

Ég las 24stundir meðan ég beið eftir ellefunni með magann fullan af hafragraut og latte.

Ég náði akkúrat að synda nægju mína upp í sundhöll milli tveggja skólasundshópa ..flúði svo í pottinn þegar ég heyrði barnakliðinn nálgast. Vöðvarnir voru þakklátir.

Svo rölti ég uppí Kennó og settist á skrifstofu nýju yfirkonu minnar. Aðstaðan er yndisleg finnst mér, undir súð uppá lofti með plöntur, sófa og kaffiborð ..espressovél beint niður brattann hringstigann, skrifborðið mitt beint undir stórum þakglugga þannig mér fannst ekkert að því að vera inni í allan dag.

Sötraði bara booztinn minn, drakk kaffi og barðist við sérviskuna í net-tengingum, hönnuðum og tæknimönnum útí heimi. Port 2082 er lokað í khí. En það er hægt að logga sig inn gegnum port 80 ef maður fer á aðra login síðu sem ég vissi ekki af. Elska live chat hjálparfítusa.

Svo kom ég heim, með smá detour á laugaveginum til að sjá smá mannlíf áður en ég færi heim í herbergi.. sendi nokkur sms og tók svo strætóinn heim þar sem ég las sociology of families meðan ég sauð pulsur og kjamsaði svo á þeim yfir simpsons í tölvunni.

Þetta er mitt hversdagslega líf..

 
  1. What is your motivation to do the European Voluntary Service project (EVS)?
  2. Why did you choose exactly this project?
  3. What do you expect to gain from the project during the stay in Poland?
  4. What are your hobbies? What do you do in your free time?
  5. Please describe yourself as a person (your characteristic features).
  6. Do you have previous international or intercultural experiences?
  7. Do you have experience in youth work? If yes, please specify.
  8. Do you have experience in being a volunteer in your country? If yes, please specify.
  9. Please describe your computer skills level.
  10. Please describe your social background (family, place of living, etc.).
 

Í morgun vaknaði ég og það voru actually fuglar að syngja. Ég hef ekki heyrt fuglasöng að morgni til í marga mánuði. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir skortinum fyrr en í morgun og varð satt að segja Creeped Out. Ekki yfir söngnum! Hann fyllti hjarta mitt eins og vatn seður skorpna jörð (ekki að hjarta mitt sé skorpið ..ennþá) ..en yfir því að hafa ekki heyrt fuglasöng svona fáránlega lengi.

..svo byrjaði helvítis nýja melódíska hringingin í Melaskóla að ælast yfir Vesturbænum og við það þögnuðu fuglarnir. Helvítis ógeðs fá-á-heilann-hringing. Sjálfsagt inspírerað af Draumalandinu.

Sama og þegar nýjir strætisvagnar voru teknir í notkun með melódískum stöðvunartakka-bjöllum..þegar dyrnar voru að lokast, í þessum sömu vögnum, dundu yfir manni ærandi viðvörunar-óhljóð. Í alvöru ..ÆRANDI.aeluvagninn.jpg

Ætlunin með melódísku bjöllunum var væntanlega að hafa róandi áhrif ..en í staðin myndaðist geðveikislegt ójafnvægisástand milli pirrandi melódíu og ærandi óhljóða svo manni leið eins og maður væri staddur í vagni helvítis, einhverskonar illkvittinni sálfræði rannsókn eftir uppskrift Pavlovs; hvernig á að gera Reykvíkinga geðveika.

Það á ekki að fokka í bjölluhringingum!

Brátt fara kirkjur sjálfsagt að bjalla sálmum í stað kirkjuklukkna yfir Breiðholtið “til að friða hverfið”. Ef það er á annað borð kirkja í gettóinu? hehehe ;)