Á þessu augnabliki, hvernig geturu sýnt þér ást og ábyrgð?
Gætiru borðað? Knúsað þig? Lagt þig? Farið í peysu?
Hætt að lesa bloggið mitt og gert það sem þú ert að fresta og gerir þig stressaðan ?
Tengstu sjálfum þér, hér og nú, á þessu augnabliki, líkama, hugsunum og tilfinningum. Andaðu djúpt og fattaðu hvað er að naga þig, þó það sé ekki nema örlítið.
Ef það er ekkert sem þú gætir gert fyrir þig núna og ert að veita þér nauðsynlega pásu, hvernig geturu glatt einhvern annan? Hringt? Emailað? Brosað til? Talað við einmana frænku þína? Sent einhverjum sms? Hugsaðu hvað þér þykir vænt um þá sem eru þér góðir. Ekki bara hugsa það, finndu það.
Ef þetta bætir ekki daginn og lífið almennt geturu prófað að klára nokkrum sinnum þessa setningu: “Ég er svo fegin/n að…”
Já og lestu www.goodnewsnetwork.org
Farðu svo á google images og leitaðu að “smile”.
Hvað svo sem þú gerir, ekki kalla mig væmna. Það myndi bara gera mig leiða.
Ef ég blogga ekki mikið næstu daga er það því prófin nálgast og ég er að læra. En komdu endilega og lestu þessa færslu eins oft og þú vilt ![]()



